þriðjudagur, júlí 25, 2006

Frábært

Nú flutti Dagur mér flotta frétt. Vonandi verður þetta til þess að fleiri námsmenn við HA nýti sér möguleika sem gefist til að skoða heiminn, fara utan og sjá heiminn frá nýju sjónarhorni, slíkt skemmir augljóslega ekki fyrir. Ég óska heiðursræðismanninum Þórunni til hamingju með vegtylluna.

fimmtudagur, júlí 13, 2006

Hiti


Nú er farið að heyrast hve heitt er hér í Tókýó. Samt er það ekki kennt á meðfylgjandi myndbandi. Ég held að ekki sé hægt að mæla svona japönsku kennslu. Ekki er kennt að kvarta undan hita. Hinsvegar er áherslan á lestastöðvar í Tókýó, þar að auki er smá púðri varið í japanskan mat. En ekki minnst á hita.

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Sviti

Nú er komið sumar, það fer hitnandi og svitnandi. Ég gerði mér grillur fyrir mánuði eða svo að ég myndi geta áorkað sitthverju til viðbótar því sem ég hafði þá reynt en nú er ég öllu svart sýnni enda heitt og sveitt. Markmiðið er að skila sínu.

Ég hef enn gaman af þessu hérna fyrir neðan, og mér þykir sushi enn gott.

mánudagur, júlí 10, 2006

menning


Mennig er mikið í umræðunni. Margir telja sína menningu heilaga. Eru þetta þá helgispjöll. Hitt er hinsvegar satt og rétt - Sushi er ljómandi gott. Hollt og gott.